Beint á efnisyfirlit þessa skjals.

Dreifing, kynning, hátíðir og kvikmyndahús

Stuðningur við kvikmyndahús

Stuðningur við samtök kvikmyndahúsa

Öll kvikmyndahús með einum sal verða að sýna minnst 25 - 30% af evrópskum kvikmyndum sem koma ekki frá heimalandi og kvikmyndahús með mörgum sölum verða að sýna minnst 20 - 22% af evrópskum kvikmyndum sem koma ekki frá heimalandi til að geta gengið í samtökin “Europa cinemas”.

Samtökin veita meðlimum styrki og gefa út upplýsingar um hvert kvikmyndahús sem gengur í samtökin.

Skilafrestur umsókna til að ganga í samtökin er 31. ágúst ár hvert. Samþykktar umsóknir taka gildi 1. janúar árið eftir.

Styrkur til kvikmyndahúsa til að fjármagna kaup á stafrænum sýningarkerfum.

Þessi nýja deild MEDIA áætlunarinnar er ætluð til að aðstoða evrópsk kvikmyndahús sem sýna mikið af evrópskum kvikmyndum (minnst 30% verður að vera frá Evrópulöndum utan heimalands) til að koma sér upp stafrænum sýningarkerfum. Á árinu 2011 verður 2 milljón evra varið til að aðstoða þannig við uppsetningu á stafrænum sýningarkerfum fyrir 100 sali í Evrópu. Fyrir hvert sýningarkerfi verður veittur 20 þúsund evru styrkur til að taka þátt í kostnaðinum, fyrir utan sýningarvélina sjálfa og netþjón. (digital projector and server).

Fyrsti skilafrestur umsókna er 15.september 2011

Umsóknargögn stafræn væðing

Til baka Senda grein Prenta greinina

 

 

Efraval






 
 

efnisyfirlit síðunnar