Ferill umsókna
Ferill umsókna
MEDIA upplýsingaþjónustan kemur upplýsingum varðandi umsóknargögn til fagfólks í viðkomandi löndum. Frekari upplýsingar og gögn beint frá höfuðskrifstofu MEDIA í Brussel fást hér.
Umsækjandi fyllir út sín gögn og nýtur til þess aðstoðar starfsfólks MEDIA upplýsingaþjónustunnar í sínu landi. Í öllum umsóknum skal nota gengi þess mánaðar sem umsóknin er send. Upplýsingar um gengi fæst hér. Allar umsóknir skal senda til Brussel, í síðasta lagi á dagsetningu skilafrestar, stílaðar á neðangreint heimilisfang, helst í ábyrgð og biðja um móttökukvittun.
EUROPEAN COMMISSION
Directorate of Education and Culture
Ms. Aviva SILVER, Head of MEDIA Unit.
Office MADO 18/068
Avenue Bourget 1
B-1049 Brussels.
Belgium
Umslagið eða pakkinn skal vera merktur þeirri deild sem sótt er um til. Þá verður nafn og heimilisfang fyrirtækis sem sækir um að koma fram á sendingunni.
Á vegum MEDIA áætlunarinnar starfar ein þjónustustofnun. Starfsfólk þjónustustofnunarinnar fer yfir umsóknir og flokkar þær í lánshæfar eða ekki. Starfsfólk höfuðskrifstofu MEDIA í Brussel kallar saman nefnd sérfræðinga sem fer yfir þær umsóknir og gefur þeim einkunnir. Endanleg ákvörðun um úthlutun styrkja og/eða lána er tekin af starfsfólki höfuðskrifstofu MEDIA, í samráði við starfsfólk fjármálaskrifstofu.
