Fréttir
MEDIA 2007
Jákvæðar breytingar
Á fyrsta árinu má búast við seinkunum á ýmsum umsóknargögnum, en í bígerð er að einfalda til muna umsóknargögnin sjálf. Þá er stefnt að því að leggja sérstaka áherslu á að umsóknir frá litlum löndum fái sérstaka meðhöndlun og jafnvel verði eyrnamerktur hluti fjármagnsins til handa þeim. Allt eru þetta góðar fréttir fyrir íslenska umsækjendur.
