Fréttir

MEDIA OG MENNINGARÁÆTLUN SAMEINAST Í NÝJA ÁÆTLUN 2013

25.5.2012

MEDIA 2007 áætlun ESB endar 31. desember 2013. Þá mun taka við ný áætlun, “Creative Europe”, en hún mun sinna öllum skapandi greinum, m.a. kvikmyndum.

Á ráðherrafundi menningarmálaráðherra ESB (sem Ísland hefur ekki aðgang að) þann 10. maí 2012 lýstu flestir ráðherrar aðildarríkjanna velþóknun sinni á fyrirhugaðri áætlun. Nokkrir voru þó ósáttir við 37% hækkun á fjármagni til áætlunarinnar. Ákveðið var að bíða með endanlega ákvörðun um “Creative Europe” þar til Evrópska þingið hefði fjallað um málið. Auk þess var farið fram á nákvæmari útlistun frá framkvæmdastjórninni um hvernig skipulagi skuli háttað og þá hvernig viðbótarfjármagninu yrði varið þannig að evrópsk menning nyti góðs af.

Mikill uggur hefur verið í evrópska kvikmyndageiranum um að það sem hefur áunnist síðastliðin 20 ár með stuðningi MEDIA áætlunarinnar muni glatast.  Framkvæmdastjórn ESB er mjög meðvituð um að vernda þurfi það sem hefur áunnist og sækir fast að fá hækkun til málaflokksins til að gera enn betur.



Senda grein