Beint á efnisyfirlit þessa skjals.

i2i Fjármögnunarkostnaður

i2i Styrkir til lækkunar á fjármagnskostnaði

Fjármögnunarkostnaður

Nú er hægt að sækja um styrki til MEDIA til að lækka fjármagnskostnað vegna lána til framleiðslu myndefnis. Þessi umsóknarpakki er kallaður i2i og hefur verið í gangi sem tilraunaverkefni síðustu 2 ár fyrir aðildarríki ESB eingöngu. Nú hefur verið ákveðið að fella hann undir MEDIA áætlunina og þar með var opnað fyrir aðgang íslenskra framleiðslufyrirtækja til að sækja um Hægt er að sækja um:

1. Styrk til að greiða niður kostnað vegna trygginga á tökutíma.

2. Styrk til að greiða niður kostnað vegna tryggingar á að kvikmynd verði fullgerð (Completion garanty).

3. Styrk vegna kostnaðar lántöku frá bönkum og fjármálastofnunum. (Mest 4% af láni til að gera kvikmyndir í fullri lengd, 3% vegna heimildarmynda og 2% af leiknu sjónvarpsefni).

Hvert fyrirtæki getur sótt um mest 2 verkefni og hægt er að sækja samtímis um í öllum þremur deildum. Samanlagt er aldrei úthlutað meira en 50 þúsund evrum á hvert verkefni og aldrei meira en 60% af kostnaði.

Skilafrestir eru tvisvar á ári, venjulega í byrjun árs og um miðbik árins.

Næstu skilafrestir eru: 5. febrúar 2010 fyrir kvikmyndir sem fara í tökur frá 1. júlí 2009 til 5. febrúar 2010 og 7. júlí 2010 fyrir kvikmyndir sem fara í tökur frá 1. janúar 2010 til 7. júlí 2010.
Umsóknargögn (upplýsingar um WinZip þjöppun má fá hér)

 

 




 
 
 

efnisyfirlit síðunnar