Tilraunaverkefni og þróun
Tilraunaverkefni frá MEDIA áætluninni
Þegar MEDIA PLÚS áætlunin var samþykkt í enda árs 2000, var jafnframt tekin sú ákvörðun að setja til hliðar ákveðna upphæð í tilraunaverkefni tengd notkun nýrrar tækni og framsetningu á hljóðmyndrænu efni. Var þessi ákvörðun tekin með það að leiðarljósi að styðja þyrfti evrópsk fyrirtæki í samkeppninni við bandarísk fyrirtæki, sem eru komin langt á undan í notkun nýrrar tækni, í framleiðslu margmiðlunarefnis og dreifingu þess á alþjóðavísu. Samstarf að minnst að kosti fjögurra landa og notkun að minnsta að kosti þriggja tungumála eru meðal skilyrða fyrir úthlutun. Geta fyrirtæki, s.s. framleiðendur, dreifendur, framleiðendur margmiðlunarefnis, sjónvarpsstöðvar, tækjabirgjar, upplýsingamiðlanir, fræðslu – og fjárhagsstofnanir og margir fleiri, í öllum þátttökulöndum MEDIA áætlunarinnar sótt um allt að 50% styrk við kostnað verkefnisins.
Dreifing: Nýjar leiðir til að dreifa og markaðssetja evrópskt efni með persónulegri þjónustu, t.d. uppsetning á stafrænni, gagnvirkri hljóðmyndrænni þjónustu, sem býður uppá þann möguleika að nálgast evrópskt efni á mörgum tungumálum.
Á hinn almenni neytandi að geta keypt sér aðgang að efninu, t.d. í gegnum veraldarvefinn og/eða sjónvarp. Í umsókninni verður sýna fram á að um gagnvirka þjónustu á mörgum tungumálum sé að ræða, í efnisvali , í verðlagningu og að viðmót sé auðvelt og lagað að þörfum hins almenna neytenda. Þá þarf að leggja áherslu á markaðssetningu sem kemur þá fram í kostnaðaráætlun verkefnisins.
Frestur til að sækja um styrk er 14. júní 2010
(upplýsingar um WinZip þjöppun má fá hér)
Þá er hægt núna að sækja um styrk til að setja í gang leigu á myndefni (Video On Demand) og stafræna dreifingu kvikmynda (Digital Cinema Distribution).
Meðal skilyrða er að fyrirtæki í minnst 5 aðildaríkjum vinni saman.
Skilafrestur umsókna er 21. júní 2010
