Beint á efnisyfirlit þessa skjals.

Þjálfun og framhaldsmenntun

Þjálfun og framhaldsmenntun

Eitt af áherslusviðum MEDIA áætlunarinnar er þjálfun og framhaldsmenntun fagfólks. Upplýsingar um námskeið styrkt af MEDIA má nálgast hér. Þar má meðal annars finna upplýsingar um hvernig sækja skal um hvert námskeið um sig.

Hægt er að sækja um styrk til að halda námskeið um allt að 50% af heildarkostnaði við námskeiðahaldið. Hægt verður að sækja um 60% af heildarkostnaði fyrir námskeið sem haldin eru í löndum með framleiðsluerfiðleika eða lítið málsvæði.

Sérstök áhersla verður lögð á eftirfarandi:

  • Notkun nýrrar tækni og þá sérstaklega stafrænni tækni við framleiðslu og dreifingu.
  • Fjármála- og viðskiptastjórnun ásamt fræðslu um lagaumhverfi og tækni í fjármögnun, framleiðslu og dreifingu myndefnis.
  • Handritsgerð - frásagnarmáti og þróun hljóðmyndrænna verka.

Meðal skilyrða fyrir styrk er að umsækjandi verður að vera háskóli, kvikmynda- eða sjónvarpsskóli, sérhæfður skóli eða stofnun, framleiðslufyrirtæki og/eða dreifandi eða sérhæfð samtök.

Námskeið má ekki vera lengra en 12 mánuðir.

Allir frá löndum Evrópusambandsins. EES ríkjum og þeim löndum sem koma inn í MEDIA áætlunina á gildistíma hennar, geta tekið þátt í námskeiðum sem hljóta styrk frá MEDIA áætluninni.

Öll námskeið eiga að bjóða upp á möguleika á styrk fyrir hluta af kostnaði við þátttöku fyrir amk. 15% þátttakenda.

Skilafrestur umsókna um styrki til námskeiðahalds er yfirleitt einu sinni til tvisvar á ári.

Síðasti skilafrestur umsókna er 15. júní 2011. Tilkynnt verður um næsta umsóknarfrest um leið og hann liggur fyrir.

Umsóknargögn fyrir námskeiðshaldara (upplýsingar um WinZip þjöppun má fá hér).

Þá er hægt að sækja um styrki fyrir nemenda- og kennaraskipti og samstarf skóla í að minnst að kosti þremur aðildarríkjum MEDIA áætlunarinnar.

Skilafrestur umsókna var 29. apríl 2011.

Umsóknargögn fyrir nemenda- og kennaraskipti.

Til baka Senda grein Prenta greinina

 

 

Efraval





 
 

efnisyfirlit síðunnar