Um MEDIA áætlunina
Hvað er MEDIA áætlunin?
MEDIA er skammstöfun á "Measures to Encourage the Development of the European Industry of the Audiovisual Production" sem útleggst á íslensku, átak til eflingar evrópskum kvikmynda-, sjónvarps- og margmiðlunariðnaði.
Áætlunin er á vegum Evrópusambandsins. EFTA ríkin Ísland, Noregur og Lichtenstein eiga aðild að áætluninni fyrir tilstilli EES samningsins um hið evrópska efnahagssvæði.
MEDIA áætluninni er ætlað að styðja við evrópska hljóð/myndræna ("audiovisual") iðnaðinn með stuðningsaðgerðum við: menntun, undirbúning verkefna eða verkefnapakka, og dreifingu og markaðssetningu myndefnis. Þessi stuðningur er yfirleitt í formi styrkja eða vaxtalausra og skilyrtra lána.
MEDIA áætlunin gildir frá 1. janúar 2007 til 31. desember 2013 og í áætlunina verða veittar um 700 milljónir evra á tímabilinu.
Markmið MEDIA er:
-
að styrkja alþjóðlega dreifingu á evrópskum myndum og margmiðlunarefni.
-
að efla samspil á milli markaðsins og styrkjakerfa.
-
að vera nógu sveiganlegt til að geta aðlagað sig að tækniþróun sem vafalítið mun eiga sér stað á tímabilinu.
-
að styrkja sérstaklega verkefni frá svæðum með "veikan" kvikmynda-, sjónvarps- og margmiðlunariðnað.
-
að styrkja sérstaklega verkefni frá "litlum málsvæðum".
