Undirbúningur verkefna og verkefnapakka
Undirbúningur verkefna og verkefnapakka
Eitt af áherslusviðum MEDIA áætlunarinnar er undirbúningur verkefna og verkefnapakka.
Hægt er að sækja um styrk til undirbúnings einstakra verkefna eða verkefnapakka. Styrkurinn getur alla jafna verið allt að 50% af kostnaðaráætlun undirbúnings. Næstu skilafrestir umsókna eru 27. Nóvember 2009 (niðurstöður væntanlegar í mars - apríl 2010) og 12. Apríl 2010 (niðurstöður væntanlegar í september- október 2010). Ný umsóknargögn eru væntanleg með haustinu og verður næsti skilafrestur umsókna í október eða nóvember 2010.
Undirbúningur skiptist í 2 undirflokka
einstök verkefni - sem skiptast í
Leiknar myndir, heimildarmyndir og teikni- og hreyfimyndir
og Gagnvirk verkefni (einungis í tengslum við kvikmyndir)
og verkefnapakka - sem skiptist í
Verkefnapakki fyrsta stig
og Verkefnapakki annað stig
Einstök verkefni (single projects)
Hægt er að sækja um styrk fyrir leikið efni (kvikmyndir eða sjónvarp), heimildarmyndir, teikni-/hreyfimyndir og margmiðlunarverk. Aðeins má sækja um eitt verkefni í einu (ef fyrirtæki óskar eftir að sækja um styrk til fleiri verkefna, sækja þau um styrk fyrir verkefnapakka, sjá hér að neðan).
Meðal skilyrða til að geta sótt um styrk:
Framleiðslufyrirtækið (eða framleiðandinn) verður að hafa framleitt og/eða dreift sambærilegu verkefni á síðustu 24 mánuðum. Fyrir fyrirtæki sem ekki hafa fengið úthlutun frá MEDIA II áætluninni (1996-2000) eða MEDIA PLÚS áætluninni, nægir að hafa dreift verkefninu innanlands. Ef framleiðandi með reynslu sækir um með nýju fyrirtæki verður fyrirtækið að hafa verið amk. eitt ár á hlutafélagaskrá.
A. Leikið efni
- myndin verður að vera a.m.k. 50 mínútna löng (kvikmyndir, sjónvarpsmyndir og þáttaraðir)
- hægt er að sækja um 20 - 60 þúsund evrur
B. Heimildarmyndir
Fyrirtæki sem hafa framleitt leikið efni geta einnig sótt um undirbúningsstyrk fyrir heimildarmyndir.
- myndin eða þáttaröðin verður að vera a.m.k. 25 mínútur að lengd
- hægt er að sækja um 10 - 30 þús. evrur
C. Teikni-/hreyfimyndir
- myndin eða þáttaröðin verður að vera a.m.k. 24 mínútna löng
- hægt er að sækja um 10 - 50 þús. evrur
- Þá er hægt að sækja um 80 þús. evrur til undirbúnings teiknimynda í fullri lengd sem sýndar verða í kvikmyndahúsum
Umsóknargögn 2009 - 2010 fyrir leiknar myndir, heimildarmyndir og teikni- og hreyfimyndir
Gagnvirk verkefni
Hægt er að sækja mest um til tveggja verkefna í einu. Verkefnið má ekki byrja í framleiðslu fyrr en báðir samningsaðilar hafa skrifað undir samning við ESB. Undirskrift ESB verður í júní 2010 fyrir skilafrestinn 27. nóvember 2009 og í nóvember 2010 fyrir skilafrestinn 12. apríl 2010. Þá verður fyrirtækið að sýna fram á að sambærilegt verkefni hefur verið í dreifingu á tímabilinu 1. janúar 2007 þartil þeir skila inn umsókn. Dreifing getur verið á netinu, farsímum, leikjatölvum og sjónvarpi. Ókeypis netdreifing er ekki marktæk.
Hægt er að sækja um undirbúningsstyrk fyrir gagnvirk verk fyrir tölvur, internet, farsíma, leikjatölvur. Verkin verða að vera verulega gagnvirk og nýstárleg.
Þá er einnig hægt að sækja um undirbúningsstyrk fyrir nýja tækni fyrir stafrænt sjónvarp, internetið eða farsíma.
Í öllum tilfellum verður að selja eða leigja aðgang að verkunum. Verkefni sem eru ekki í raun gagnvirk koma ekki til greina.
Umsóknargögn 2009-2010 fyrir gagnvirk verk
Verkefnapakkar (slate-funding)
Hægt er að sækja um fyrsta eða annað stig af verkefnapökkum.
Verkefnapakki fyrsta stig.
Fyrirtæki sem sækja vilja um undirbúningsstyrk fyrir verkefnapakka verða að hafa á síðastliðnum þremur árum framleitt eina eða fleiri myndir sem sýnd hefur verið í að minnst að kosti einu landi utan heimalands.
Hægt er að sækja um 70 - 190 þús. evrur
Umsóknargögn 2009 - 2010 fyrir verkefnapakka fyrsta stig
Verkefnapakki annað stig.
Fyrirtæki sem sækir um verður að hafa fengið úthlutað úr fyrsta stigs verkefnapakka. Er í raun og veru framhald fyrir fyrirtæki sem hafa sýnt að þau geta haldið utan um samning um verkefnapakka.
Fyrirtækin þurfa að skila mjög ítarlegri umsókn með viðskiptaáætlun til næstu þriggja ára. Þá þarf fyrirtækið að skila inn ársreikningum síðustu tveggja ára, ásamt nákvæmum upplýsingum um þær myndir sem fyrirtækið hefur framleitt.
Umsóknargögn 2009 - 2010 fyrir verkefnapakka annað stig
