Stuðningur við framleiðendur
Trygging vegna fjármagnslána við framleiðslu (MEDIA Production Guaranty Fund)
því erfiða fjármagnsumhverfi sem nú ríkir í Evrópu og vanda kvikmyndaframleiðenda til að fá lán á evrópska markaðnum, hefur MEDIA ákveðið að bregðast við vandanum með því að setja upp tryggingarsjóð sem tekur áhættuna á 50% af lánum þeirra. Umsækjandi sækir um bankalán í sínu landi og ef bankinn treystir sér ekki til að veita lánið er hægt að benda á að hægt er að sækja um tryggingu fyrir helming af láninu hjá tryggingarsjóði MEDIA. Tvær stofnanir í Evrópu hafa tekið að sér að sjá um tryggingarsjóðinn: önnur þeirra er IFCIC (Institut pour le Financement du Cinema et des Industries Culturelle), sem er frönsk fjármálastofnun og hin er Audiovisual SGR (Sociedad de Garantie reciproca para el Sector Audiovisual) sem er tryggingarsjóður á Spáni. Sú síðarnefnda hefur gert samning við breska fyrirtækið Peacefulfish, sem hefur serhæft sig meðal annars í að meta norræn framleiðslufyrirtæki. Íslenskar umsóknir ættu því að fara til þeirra.
Upplýsingar um hvernig á að sækja um má finna á heimasíðum stofnanna: www.ifcic.fr og www.audiovisualsgr.com
